Bókin er söngleikrit og heitir Prinsessa Súsí. Hún hentar sem kennslubók fyrir börn í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskólum.
Rósa Erlendsdóttir kennari aðstoðaði Valentinu við að skrifa íslenskan texta. Barbara Fleckinger kennari samdi söngtexta við 7 lög. Dóttir Valentinu, Viktoria, bað hana um að semja sögu um prinsessu. Viktoria teiknaði allar myndirnar í bókinni. Samskipti ehf. og Starfsmenntasjóður FT og FÍH studdu útgáfuna. Bækurnar eru nú fáanlegar í Tónastöðinni. Valentina er að semja nýja bók sem heitir Etudes.
Valentina hóf sjálf tónlistarnám þegar hún var 5 ára gömul. Hún stundaði tónlistarnám í Úkraínu í sex ár,í Hvíta-Rússlandi í fjögur ár ogí Rússlandi í fimm ár. Valentina lærði á píanó og harmonikku en einnig lærði hún útsetningu og hljómsveitarstjórn. Hún lauk prófi sem tónlistarkennari frá Conservatoriu Ríkisins í Petrozavodsk. Eftir að hún fluttist til Íslands 2002 hefur hún haldið áfram að mennta sig og árið 2008 útskrifaðist hún sem tónsmiður frá Listaháskóla Íslands.
Valentina er nú skólastjóri Tónlistarskóla Snæfellsbæjar, eins og kunnugt er, en hún hefur starfað með börnum frá því hún var 17 ára gömul.