
Kosið verður til Alþingis laugardaginn 25. september nk. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst mánudaginn 6. september 2021 hér í Snæfellsbæ.
Greiða má atkvæði utan kjörfundar í Ráðhúsi Snæfellsbæjar á opnunartíma:
Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30.
Föstudaga frá kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00.
Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.
Athugið að öllum þeim sem eru skráðir á kjörskrá er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá hvaða sýslumanni sem er, óháð búsetu eða lögheimili. Í auglýsingu Sýslumannsins á Vesturlandi segir að greiða megi atkvæði utan kjörfundar á eftirfarandi stöðum:
Frá 25. september:
Akranesi – Stillholti 16-18, mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en 09:00 til 14:00 á föstudögum.
Borgarnesi – Bjarnarbraut 2, mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en 09:00 til 14:00 á föstudögum.
Stykkishólmi – Borgarbraut 2, mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en 09:00 til 14:00 á föstudögum.
Búðardal – Miðbraut 11, á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 09:30 til 13:00
Eyja- og Miklaholtshreppi – skrifstofu hreppsstjóra, Þverá
Alla virka daga kl. 12:00 til 13:00.
Frá 6. september:
Grundarfirði – skrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Borgarbraut 16
Alla virka daga kl. 10:00 til 14:00.