Skip to main content
search

Auglýst eftir stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík

Nemendur fagna tíu ára afmæli skólans árið 2014. Ljósmynd: Þröstur Albertsson.

Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir lausa til umsóknar stöðu stuðningsfulltrúa í Ólafsvík. Um 70% stöðugildi er að ræða.

Grunnskóli Snæfellsbæjar er þriggja starfsstöðva grunnskóli með um 230 nemendur. Starfsstöðvar hans eru í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsu. Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans.

Starfssvið:

  • Leiðbeinir nemendum í samskiptum við aðra nemendur og starfsfólk.
  • Vinnur að uppeldi og menntun nemenda.
  • Aðstoða nemendur í leik og starfi.
  • Ýmis önnur verkefni sem falla til hverju sinni.

Hæfniskröfur:

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Umsóknarfrestur er til og með 23. júlí 2021.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Samflot bæjarstarfsmannafélaga.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Snæfellsbæjar eru allir, óháð kyni, hvattir til að sækja um.

Upplýsingar veitir Hilmar Már Arason, skólastjóri, í síma 894-9903. Umsóknir skal senda á skólastjóra á netfangið hilmara@gsnb.is.

Nánari upplýsingar:

Umsóknareyðublað