
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir umsóknum um búsetu í nýjum þjónustuíbúðakjarna fólks með fötlun að Ólafsbraut 62-64 í Ólafsvík.
Um er að ræða fimm einstaklingsíbúðir með stuðningsþjónustu FSS. Stuðningsþjónusta felur í sér aðstoð/leiðsögn til sjálfstæðrar búsetu í eigin íbúð.
Umsækjendur þurfa að uppfylla neðangreind skilyrði:
- Eigi lögheimili á Snæfellsnesi
- Séu 18 ára eða eldri.
- Hafi verið virkur og eða verður notandi dagþjónustu og hæfingarstöðvar FSS.
- Hafi metna þjónustuþörf í 6. flokki SIS eða hærra.
- Staðfest fötlunargreining Greiningar- og ráðgjafarstöðvar liggi fyrir.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2021.
Umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og kynningarefni um þjónustuíbúðakjarnann má finna á heimasíðu Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.
Umsóknir berist Jóni Hauki Hilmarssyni, ráðgjafarþroskaþjálfa, á skrifstofu Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Hellissandi eða á netfangið jonhaukur@fssf.is.
Ekki liggur fyrir hvenær starfsemi getur hafist.
Nánari upplýsingar: