
Snæfellsbær býður til fjölskylduhátíðar í félagsheimilinu Klifi miðvikudaginn 30. október kl. 20:00 í tilefni þess að forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson og frú Eliza Reid koma í opinbera heimsókn til Snæfellsbæjar.
Boðið verður upp á veitingar og tónlistaratriði.
Dagskrá:
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, býður forsetahjón velkomin.
Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, flytur ávarp.
Tónlistaratriði í boði heimamanna:
- Stefanía Klara Jóhannsdóttir
- „Memory“ eftir Andrew Lloyd Webber úr leikritinu Cats. Stefanía leikur á trompet. Undirleikur: Evgeny Makeev.
- Veronica Osterhammer
- „Krosshólaborg“ eftir Valentinu Kay. Texti eftir Egil Þórðarsson. Undirleikur: Evgeny Makeev og Elena Makeeva.
- Evgeny Makeev
- „I will wait for you“ eftir Michel Legrand úr franska leikritinu Regnhlífar í Cherbourg.
- Valentina Kay
- „Þitt fyrsta bros“ eftir Gunnar Þórðarsson. Valentina Kay og Evgeny Makeev.
Að loknum tónlistatriðum verður boðið upp á veitingar. Umsjón: Kvenfélag Hellissands.
–
Íbúar og nærsveitungar eru hvattir til að koma til fundar við forsetahjónin og eiga ánægjulega kvöldstund.
Ennfremur eru íbúar hvattir til að flagga íslenska fánanum í tilefni dagsins.