
Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir lausar til umsóknar þrjár stöður kennara fyrir skólaárið 2021 – 2022.
Grunnskóli Snæfellsbæjar er þriggja starfsstöðva grunnskóli með um 230 nemendur. Starfsstöðvar hans eru í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsu. Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans – gsnb.is.
Auglýst er eftir:
- Umsjónarkennara í 1. – 7. bekk.
- Kennara í heimilisfræði, 50% stöðugildi.
- Tímabundna stöðu íþróttakennara í eitt ár, 50% stöðugildi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar.
- Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2021. Umsóknir sendist til skólastjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar, Ennisbraut 11, 355 Snæfellsbær eða á netfangið hilmara@gsnb.is. Í umsókn skal koma fram upplýsingar um menntun, réttindi og starfsreynslu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Snæfellsbæjar eru allir, óháð kyni, hvattir til að sækja um störfin.
Frekari upplýsingar veitir Hilmar Már Arason, skólastjóri, í síma 894-9903 eða hilmara@gsnb.is.