Þjóðhátíðardagurinn 17. júní verður haldinn hátíðlegur í Snæfellsbæ og verður dagskrá með hefðbundnu sniði. Dagskrá hátíðarhalda tekur þó mið af líðandi stund og eru íbúar hvattir til að virða persónulegt rými fólks.
Dagskrá:
Kl. 10:30 Landsbankahlaupið
- 5 ára og yngri hlaupa 500 metra.
- 6-8 ára hlaupa 1,3 km
- 9-11 ára hlaupa 2,5 km
- 12-16 ára hlaupa 3,5 km
Kl. 11:00 – 12:30 Lego-samkeppni (móttaka verka)
Tekið á móti Lego-verkum í íþróttahúsi Snæfellsbæjar. Engar reglur um byggingarstíl eða burðarvirki. Opið öllum frá 5 – 12 ára aldri.
Kl. 14:00 Hátíðardagskrá í Sjómannagarðinum í Ólafsvík
- Kynnir hátíðarinnar: Margrét Vilhjálmsdóttir
- Hátíðin sett: Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
- Ávarp fjallkonu
- Helgistund: Sr. Óskar Ingi Ingason ásamt kirkjukórum í Snæfellsbæ
- Ræða nýstúdents: Bjarni Arason
- Snæfellsbæingur ársins tilnefndur
Kl. 14:00 – 17:00 Lego-samkeppni
Opin sýning á verkum í Lego-samkeppninni
Kl. 15:00 Við Hafró á Norðurtanga
Hesteigendafélagið Hringur leyfir börnum að fara á hestbak.
Kl. 15:30 Snæfellsbæjarleikarnir
Snæfellsbæjarleikar verða haldnir á svæðinu við íþróttahús Snæfellsbæjar.
- Knattþrautir í umsjón mfl. Víkings
- Streetball-mót
- Leikjafjör í boði UMF Víkings/Reynis
- Grillaðar pylsur og svalar fyrir krakka, úrslit úr TikTok-keppni og Lego-samkeppni