
Þessa dagana stendur Byggðastofnun fyrir könnun á búsetusögu, lífsgæðum og fyrirætlunum um framtíðarbúestu í bæjum og þorpum með færri en 2000 íbúa. Það er mikilvægt að íbúar sem búa í þessum bæjum taki þátt svo niðurstöður verði marktækar og mögulegt verði að vinna úr þeim. Hingað til hefur þátttaka í Snæfellsbæ ekki verið nægilega góð og viljum við kalla eftir betri svörun.

Nánar um könnunina:
Könnunin Byggðafesta og búferlaflutningar: Bæir og þorp á Íslandi er hluti rannsóknarverkefnis á vegum Byggðastofnunar í samstarfi við rannsóknafólk við innlenda og erlenda háskóla. Könnuninni er ætlað að safna margvíslegum upplýsingum sem aukið geta skilning á málefnum minni byggðarlaga og stutt við stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum. Þessi könnun nær til byggðakjarna með færri en tvö þúsund íbúa utan suðvestursvæðis landsins.
Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri stýrir rannsókninni og svarar spurningum í síma 661 6099 eða í tölvupósti thoroddur@unak.is. Þátttaka í könnuninni er að sjálfsögðu frjáls og svarendum ber hvorki skylda til að svara einstökum spurningum eða könnuninni í heild. Könnunin er unnin í samræmi við lög 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sjá nánar hér.