
Snæfellsbær óskar eftir að ráða starfsmann til starfa í upplýsingamiðstöð Snæfellsbæjar í Átthagastofu sumarið 2021.
Hæfniskröfur:
- Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
- Góð þekking á svæðinu og nærumhverfi.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Góð tök á ensku og íslensku. Önnur tungumál eru kostur.
- Stundvísi og jákvæðni.
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2021. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í maí og unnið út ágúst, jafnvel lengur.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu.
Upplýsingar veitir Heimir Berg Vilhjálmsson, markaðs- og upplýsingafulltrúi, í síma 433-6900 og á heimir@snb.is.
Vinsamlegast sendið umsóknir á ofangreint netfang.