Virðum fjarlægðamörkin
Lágmark 2 metrar á milli manna og mest 15 mínútur í einu.
- Reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan sóttkví stendur.
- Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum og þar af leiðandi ekki í matvöruverslanir.
- Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir með sorp á móttökustöðvar sveitarfélaga.
- Einstaklingar í sóttkví mega fara í göngutúra en verða skilyrðislaust að halda reglur um fjarlægð frá öðrum.
Vinnum saman og hindrum frekari útbreiðslu smita.
Athygli er vakin á því að brot á reglum um sóttkví varða við lög.
Aðgerðastjórn almannavarna á Vesturlandi