
Reykjavíkurdætur á Barnamenningarhátíð í Snæfellsbæ 2022.
Menningarnefnd Snæfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um örstyrki til menningarverkefna í Snæfellsbæ sumarið 2023.
Veittir verða fjórir styrkir kr. 50.000.- hver til tónleikahalds, listasýninga, útgáfu eða annarra verkefna sem styðja við lista- og menningarlíf í Snæfellsbæ, íbúum til heilla.
Umsóknir sendist á netfangið menningarnefnd@snb.is.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl 2023.
Íbúar á öllum aldri eru hvattir til að sækja um styrk til að gera eitthvað spennandi og skemmtilegt í sumar.