
Framkvæmdir á Fróðárheiði sumarið 2020.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála á Vesturlandi miðvikudaginn 3. mars kl. 15:00-17:00.
Á fundinum verður fjallað um samgöngumál í landshlutanum, helstu áskoranir og tækifæri til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum. Fundurinn er öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku á skráningarsíðu fundarins. Allir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.
SKRÁNING HÉR Þeir sem skrá sig fá sendan hlekk á veffundinn.
Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar um stöðu samgöngumála. Sjá nánar á vef um grænbók um samgöngumál.
15:00–16:00 Erindi
Gísli Gíslason, fv. hafnarstjóri Faxaflóahafna, Akranesi
Sigríður Huld Skúladóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Dalabyggð
Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi
16:00–17:00 Umræður
Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar.