
Á morgun verða fundir með starfsfólki Markaðsstofu Vesturlands á Snæfellsnesi þar sem nýútgefin Áfangastaðaáætlun Vesturlands verður kynnt og áhersluverkefni í ferðamálum í landshlutanum næstu árin verða til umræðu.
Hagaðilar og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta.
Allir velkomnir.
Snæfellsnes – fimmtudagur 4. mars.
- Breiðablik – Gestastofa Snæfellsness kl. 10:30
- Átthagastofa í Ólafsvík kl. 13:00
- Samkomuhúsið í Grundarfirði kl. 15:00
- Ráðhúsloftið í Stykkishólmi kl. 17:00
Akranes – föstudagur 5. mars.
- Breið – nýsköpunarsetur kl. 13:00
Hvalfjörður – Borgarfjörður – mánudagur 8.mars.
- Laxárbakki í Hvalfjarðarsveit kl. 10:00
- Hótel Húsafell kl. 13:30
- Hótel B59 Borgarnesi kl. 17:00
Dalir – þriðjudagur 9. mars.
- Vínlandssetrið í Búðardal kl. 17:00