Grunnskóli Snæfellsbæjar verður settur á morgun, miðvikudaginn 22. ágúst.
Fer skólasetning fram í sölum starfstöðvanna áður en nemendur hitta umsjónarkennara sína. Foreldrar og velunnarar skólans eru boðnir velkomnir.
Nemendur mæta sem hér segir:
Nemendur í 4. – 7. bekk mæta kl. 10:00 í Ólafsvík.
Skólabíll fer frá Hellissandi kl. 9:40.
Nemendur í 8. – 10. bekk mæta kl. 11:00 í Ólafsvík.
Skólabíll fer frá Hellissandi kl. 10:40.
Nemendur í 2. og 3. bekk mæta kl. 12:00 á Hellissandi.
Skólabíll fer frá Ólafsvík kl. 11:40.
Allir nemendur á Lýsu mæta kl. 14:00.
Þeir sem vilja nýta skólabíla hafi samband við skólabílstjóra.
Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar, norðan heiðar, verða boðaðir í viðtöl til umsjónarkennara sinna barna þriðjudaginn 21. ágúst og miðvikudaginn 22. ágúst.
Skóli hefst síðan samkvæmt stundarskrá fimmtudaginn 23. ágúst. Nemendur og forráðamenn geta nálgast stundatöflur inn á Mentor.
Meðfylgjandi mynd var tekin af útskriftarnemum við skólaslit síðasta vetrar. Hægt er að smella á myndina til að sjá hana í betri upplausn.