
Samstarfsnefnd um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar boðar til Skólaþings laugardaginn 22. janúar milli kl. 13 og 15.
Markmiðið með sameiningu sveitarfélaganna tveggja er að styrkja byggð og samfélag á sunnanverðu Snæfellsnesi. Í því felst m.a. að marka skýra skólastefnu til framtíðar og að á sunnanverðu Nesinu verði öflugur dreifbýlisskóli. Á Skólaþingi fer fram samráð við íbúa og skólasamfélagið, sem er fyrsta skref í þeirri stefnumörkun.
Skólaþingið er öllum opið. Í ljósi samkomutakmarkana fer fundurinn fram rafrænt á Zoom. Tengill inn á fundinn verður aðgengilegur hér föstudaginn 21. janúar kl. 17, en þá er væntanlegum þátttakendum boðið að prófa að skrá sig inn á ZOOM og læra á umhverfið.
Nánari upplýsingar og skráning á Skólaþingið fer fram á vefsíðunni snaefellingar.is.
Dagskrá laugardaginn 22. janúar:
Kl. 13:00 – 13:55
- Eggert Kjartansson formaður samstarfsnefndar opnar skólaþingið
- Hilmar Már Arason, skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar
- Sigurður Jónsson, skólastjóri Laugargerðisskóla
- Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands og fyrrverandi skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar
- Sóldís Fannberg frá Lýsudal, fyrrum nemandi á Lýsuhóli lýsir sýn nemanda
Kl. 13:55 – 14:00
Kaffihlé
Kl. 14:00 – 15:00
- Umræður
- Fundargestum skipt í hópa sem ræða stöðu skólamála og sýnina til framtíðar.