
Alma D. Möller, landlæknir, og Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, handsala samninginn í dag.
Snæfellsbær og Embætti landslæknis undirrituðu nú laust eftir hádegi samstarfssamning um þátttöku Snæfellsbæjar í verkefninu Heilsueflandi samfélag.
Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa.
Með undirritun samningsins bætist Snæfellsbær í hóp þeirra sveitarfélaga sem hafa haft frumkvæði að því að skuldbinda sig til að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa sinna á markvissan hátt. Myndaður hefur verið þverfaglegur stýrihópur hér í Snæfellsbæ sem heldur utan um verkefnið:
Stýrihópur:
- Jóhanna Jóhannesdóttir, f.h. íþrótta- og æskulýðsnefndar
- Alma Clausen, f.h. grunnskóla Snæfellsbæjar
- Hermína K. Lárusdóttir, f.h. leikskóla Snæfellsbæjar
- Gunnhildur Kristný Hafsteinsdóttir, f.h. velferðarnefndar
- Eiríkur Böðvar Rúnarsson, f.h. atvinnuveganefndar
Varamenn stýrihóps:
- Kristgeir Kristinsson
- Vilborg Lilja Stefánsdóttir
- Linda Rut Svansdóttir
- Auður Kjartansdóttir
Tengiliður stýrihóps er Kristfríður Rós Stefánsdóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltúi Snæfellsbæjar.