
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til samstarfsverkefna Íslendinga og Pólverja á sviði menningar. Umsóknarfrestur er til 22. janúar 2021.
Styrkirnir eru veittir með framlagi frá uppbyggingarsjóði EFTA. Pólsk stjórnvöld leggja til 5 milljónir evra til samstarfsverkefnanna. Sótt er um styrkina til Póllands og leiðir pólski samstarfsaðilinn umsóknarferlið. Verkefnin þurfa að standa yfir í 12 – 24 mánuði og eru styrkir til verkefna á bilinu 100.000 – 500.000 evra. Samstarfið getur verið á öllum sviðum menningar, t.d. tónlistar, leiklistar, myndlistar, kvikmyndahátíða, bókmennta, safna, listmenntunar og menningararfs.
Fyrsta skref íslenskra umsækjenda er að tryggja pólskan samstarfsaðila.
Nánar á vefsíðu Rannís – Rannsóknarmiðstöðvar Íslands þar sem einnig má finna gagnabanka með mögulegum samstarfsaðilum í Póllandi.
Ljósmynd frá Wrocław í Póllandi: Mihaela Holhos, Unsplash