
Tækniþróunarsjóður heldur kynningarfund í húsnæði Símenntunar við Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi fimmtudaginn 29. ágúst næstkomandi. Fundurinn hefst kl. 12 og mun standa í um klukkustund.
Dagskrá:
Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, fer yfir:
- Styrkjaflokka Tækniþróunarsjóðs
- Skattafrádrátt vegna rannsókna- og þróunarverkefna
- Nýsköpunarsjóð námsmanna
- Eurostars-2
Kaffi og meðlæti verður í boði. Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Svölu Svavarsdóttur (svala@ssv.is).
Næsti umsóknarfrestur er til 16. september 2019.