
Umhverfisstofnun auglýsir eftir landvörðum í tímabundin störf í Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Í þjóðgarðinum fer starfsemin fram á utanverðu Snæfellsnesi, á gestastofu á Malarrifi, ströndinni við Stapa og í Búðahrauni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón og eftirlit með starfssvæðum
- Gæta þess að ákvæðum náttúruverndarlaga og sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæða sé fylgt
- Upplýsa og fræða gesti um náttúru og sögu svæðanna, m.a. með fræðslugöngum
- Sinna viðhaldi innviða og halda við merktum gönguleiðum
- Bregðast við ef slys ber að höndum
Hæfnikröfur:
- Landvarðanámskeið eða nám sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi er krafa
- Gild ökuréttindi er krafa
- Gild skyndihjálparréttindi er krafa. Boðið verður upp á námskeið í fyrstu hjálp í vor
- Góð færni í samskiptum er mikilvæg
- Reynsla af landvörslustörfum er kostur
- Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur
- Góð kunnátta í íslensku og ensku er mikilvæg og frekari tungumálakunnátta kostur
- Reynsla af útivist og náttúrutúlkun, skálavörslu, björgunarsveitarstörfum og leiðsöguréttindi eru kostir
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Snæfellinga hafa gert. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 15.02.2021
Nánari upplýsingar:
Jón Björnsson – jonb@umhverfisstofnun.is – 591-2000
Linda Björk Hallgrímsdóttir – linda.hallgrimsdottir@umhverfisstofnun.is – 591-2000
Ljósmynd: Umhverfisstofa/Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull