Skip to main content
search

Uppbyggingarsjóður Vesturlands auglýsir eftir umsóknum

19/10/2021nóvember 9th, 2021Fréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands – Úthlutun í janúar 2022

Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.

Að þessu sinni verða veittir styrkir til eftirfarandi verkefna:

  • Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir til menningarmála
  • Stofn- og rekstrarstyrkir til menningarmála

Frestur til að skila inn umsóknum er til og með 17. nóvember 2021.

Aðstoð við umsóknir:

Atvinnu- og nýsköpunarverkefni:

Ólafur Sveinsson olisv@ssv.is 892-3208
Ólöf Guðmundsdóttir olof@ssv.is 898-0247
Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is 895-6707

Menningarverkefni:

Sigursteinn Sigurðsson sigursteinn@ssv.is  698-8503

Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi er rafræn umsóknargátt. Þar má einnig finna nánari upplýsingar, reglur og viðmið varðandi styrkveitingar.