Frestur til að sækja um styrki til atvinnuþróunar og nýsköpunar úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands hefur verið framlengdur til miðnættis þann 9. október 2018.
Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi er að finna upplýsingar um umsóknarferli, reglur og viðmið varðandi styrkveitingar.
Nánari upplýsingar fást í síma 433-2310 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið: uppbyggingarsjodur@ssv.is