
Tökur á kvikmyndinni Woman at Sea hefjast fimmtudaginn 3. júní í Snæfellsbæ. Kvikmyndin er gerð eftir margverðlaunaðri franskri bók sem fjallar um franska ævintýrakonu sem ákveður að hefja nýtt líf sem sjómaður í karllægum heimi á norðurhjara veraldar. Þar þarf hún að takast á við líkamlegt erfiði og náttúröflin á sama tíma og hún horfist í augu við sjálfa sig og sigrast á eigin ótta.
Tökurnar standa yfir næstu vikurnar og verður tíðindum er varða þær miðlað hér íbúum til upplýsinga. Takmarkanir kunna að verða á umferð um vissar götur rétt á meðan einhverjar tökur standa yfir og verður henni þá stýrt af tökuliði í samstarfi við lögregluna og Vegagerðina.
Fréttin verður uppfærð daglega með upplýsingum um tökustaði. Vinsamlega athugið að plön geta breyst með skömmum fyrirvara.
23. júní
22. júní
Átthagastofa: Upptökur innandyra allan daginn.
19. júní
Átthagastofa: Upptökur innandyra allan daginn.
16. júní
Tökur í Grundarfirði og Rifi. Upptökur fara fram frá kl. 18:00 og fram á nótt við olíutankinn á Rifi. Umferð stýrt um Háarif ef þörf þykir.
15. júní
Upptökur í Grundarfirði.
12. júní
Tökur á sjó um borð á Agli SH-195. Stór tökudagur og björgunarsveitin verður með í för.
11. júní
Tökur um borð í Agli SH-195 í höfninni í Ólafsvík.
10. júní
Tökur á sjó um borð á Agli SH-195.
8. júní
Höfnin í Ólafsvík: Tökur við Snoppuveg 4-6 frá kl. 14:30 – 18:00. Í kvöld og fram á nótt verður tekið upp við Norðurtanga 5 (Hafnarskrifstofuna). Umferð stýrt um um Norðurtanga.
Jafnframt verður stutt taka á Malarrifi einhvern tímann í dag.
7. júní
Höfnin í Ólafsvík: Tökur á bryggjunni, um borð og við Egil SH-195 frá kl. 9:00 – 14:00.
4. júní
Snoppuvegur: Upptökur fara fram við Snoppuveg í Ólafsvík frá kl. 16:00 – 18:00. Umferð stýrt.
Íþróttahúsið á Hellissandi: Upptökur innandyra frá 18:00 – 20:30.
Gamla frystihúsið í Ólafsvík: Upptökur á efstu hæð frá 23:00 og fram á nótt.
3. júní