Bókaveisla á Klifi
06.12.2018 |
Fréttir
Árleg bókaveisla Grunnskóla Snæfellsbæjar verður haldin 10. desember n.k. í félagsheimilinu Klifi og hefst klukkan 20:00.
Eftirfarandi rithöfundar lesa úr bókum og árita:
Einar Kárason - Stormfuglar
Auður Ava Ólafsdóttir - Ungfrú Ísland
Hallgrímur Helgason - Sextíu kíló af sólskini
Yrsa Sigurðardóttir - Brúðan
Þorgrímur Þráinsson - Íslenska kraftaverkið - á bak við tjöldin
10. bekkur kynnir höfunda og selur veitingar.
Aðgangseyrir: 1000 krónur fyrir fullorðna, 500 krónur fyrir börn yngri en 15 ára í fylgd með fullorðnum.
Ath: Enginn posi á staðnum.