Pakkhúsið í Ólafsvík er eitt fárra verslunarhúsa frá 19. öld sem stendur enn. Það var byggt árið 1844 og var friðað þann 31. ágúst árið 1970 af þáverandi menntamálaráðherra. Pakkhúsið er minnisvarði um liðna tíð og sögu bæjarins. Á miðhæð og í risi er safn en á fyrstu hæð er handverkssala og krambúð.
Krambúð Pakkhússins leitast við að skapa andrúmsloft liðinna tíma. Í krambúð er einnig úrval íslensks handverks og fágætir listmunir frá listamönnum úr byggðarlaginu.
Á annarri og þriðju hæð hússins er byggðasafn. Þar má meðal annars upplifa íslenskt alþýðuheimili 19. aldar og skyggnast inn í undraverða atvinnu- og lifnaðarhætti sjómanna fyrr á öldum. Á þriðju hæð safnsins er sýning sem kallast “Pakkhúsloftið”.
Til upplýsingar:
Safnið er alla jafna opið á sumrin, frá júní til loka ágústmánaðar.
Opið alla daga frá kl. 12 til kl. 17.
Opnum einnig fyrir hópa eftir samkomulagi.
Verðskrá:
Frítt fyrir börn og eldri borgara
Fullorðnir 500 kr.
Pakkhúsið stendur við Ólafsbraut 12 í Ólafsvík
Sími: 433-6930
Netfang: atthagastofa@snb.is