01.AugustAug.2018 21:00 - 23:00
hours
-
Ásgeir heldur í fyrsta skipti í tónleikaferðalag um Ísland þar sem hann kemur fram á alls 14 tónleikum dagana 17. júlí til 1. ágúst. Á tónleikunum frumflytur hann m.a. glænýtt efni sem mun prýða hans þriðju plötu sem væntanleg er í upphafi næsta árs. Um lágstemmda og hlýlega tónleika er að ræða þar sem rödd Ásgeirs fær að njóta sín en Ásgeir kemur fram ásamt Júlíusi Róbertssyni félaga sínum. Forsala er hafin á tónleikana á Miði.is. Miðaverð er krónur 4.500.
Ásgeir gaf út sína aðra plötu, Afterglow, í maí á síðasta ári og hélt í kjölfarið í stíft tónleikaferðalag um Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Því tónleikaferðalagi lauk um páskana í Ástralíu. Nú er hann mættur aftur í hljóðver til að taka upp sína þriðju plötu fullur af orku. Þá kviknaði löngun til þess að ferðast um Ísland að sumri til með gítarinn einan að vopni til að prufukeyra hið nýja efni í bland við eldri lög. Einfalt skyldi það vera, rétt eins og við upphaf ferils Ásgeirs árið 2012 þegar hann og Júlíus vinur hans léku á fjölmörgum tónleikum við hin ýmsu tækifæri. Það fer nefnilega allt í hringi og stundum er gott að leita aftur í ræturnar, í upphafið, áður en næsti hringur hefst, samanber Hringsól.
Event expired
Event is in progress
Location
FrystiklefinnDirections
Could not find route!
Schedule
Guests
Attendance
Forecast
Comments
Weather data is currently not available for this location
Weather Report
Today stec_replace_today_date
stec_replace_current_summary_text
stec_replace_current_temp °stec_replace_current_temp_units
Wind stec_replace_current_wind stec_replace_current_wind_units stec_replace_current_wind_direction
Humidity stec_replace_current_humidity %
Feels like stec_replace_current_feels_like °stec_replace_current_temp_units
Forecast
Date
Weather
Temp
stec_replace_date
stec_replace_icon_divstec_replace_min / stec_replace_max °stec_replace_temp_units
Next 24 Hours
Powered by Forecast.io