Hjá Snæfellsbæ starfa þegar allt er talið um 250 einstaklingar í mismunandi stöðugildum. Vinnustaðir bæjarins eru margir og misfjölmennir. Leikskólar, grunnskóli, tónlistarskóli, félagsstarf eldri borgara, félagsmiðstöð ungmenna, liðveisla fatlaðra og íþróttamannvirki eru þar á meðal. Stjórnsýslan fer fram í Ráðhúsinu við Klettsbúð 4 á Hellissandi.
Sumarstarfsmenn hafa verið margir en fjöldi þeirra sveiflast talsvert milli ára. Stefnan hefur verið sú að allir unglingar í 7.-10. bekk sem vilja hafa fengið vinnu í unglingavinnunni á sumrin. Jafnframt hafa unglingar eldri en 16 ára verið í sumarvinnu í garðyrkju og í áhaldahúsi.
Mannauður
- Vinnustaðurinn
- Jafnréttisáætlun
- Jafnlaunastefna
- Stofnanir
- Starfsfólk
- Laus störf