Bæjarráð

Fundargerð bæjarráðs
304. fundur
11. apríl 2019 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar frá kl. 12:00 – 12:47.

Fundinn sátu: Júníana B. Óttarsdóttir, Rögnvaldur Ólafsson, Fríða Sveinsdóttir, Kristinn Jónasson bæjarstjóri og Lilja Ólafardóttir bæjarritari.

Fundargerð ritaði: Lilja Ólafardóttir bæjarritari

Sækja fundargerð

Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn. Var svo gengið beint til boðaðrar dagskrár.

Dagskrá:

1. Ársreikningar Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2018.

Bæjarráð fór yfir ársreikning Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2018. Nokkur umræða varð um reikninginn.

Bæjarráð samþykkti ársreikninginn samhljóða og samþykkti jafnframt að vísa ársreikningi Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2018 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Fundi slitið kl. 12:47.