Bæjarráð

Fundargerð bæjarráðs
310. fundur
28. nóvember 2019 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar frá kl. 12:00 – 12:55

Fundinn sátu: Júníana Björg Óttarsdóttir, Rögnvaldur Ólafsson, Svandís Jóna Sigurðardóttir, Kristinn Jónasson bæjarstjóri og Lilja Ólafardóttir bæjarritari.

Fundargerð ritaði: Lilja Ólafardóttir bæjarritari.

Sækja fundargerð

Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.  Var að svo búnu gengið beint til boðaðrar dagskrár. 

Dagskrá:

1. Umsókn frá Eddu Báru Sveinbjörnsdóttur, dags. 7. nóvember 2019, varðandi leyfi til að fá að halda hundinn Kjóa. 

Umsóknin samþykkt samhljóða. 

2. Bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, dags. 4. nóvember 2019, varðandi leiðbein-ingar til sveitarfélaga vegna skólaaksturs í grunnskóla. 

Lagt fram til kynningar. 

3. Bréf frá Kristínu Magnúsdóttur, dags. 16. nóvember 2019, varðandi ágang af vega- og fjörurollum í skógrækt að Ægissíðu í Staðarsveit. 

Lagt fram til kynningar, en bæjarráð vísar í fyrri svör um sama málefni. 

4. Bréf frá Lionsklúbbi Ólafsvíkur, dags. 18. nóvember 2019, varðandi ósk um niðurfellingu af leigu í Klifi þann 24. desember vegna jólahappdrættis Lions. 

Bæjarráð samþykkti erindið samhljóða, enda fellur það undir reglur Snæfellsbæjar um niðurfellingu á leigu félagsheimilanna. 

5. Tillaga að fjárfestingum á fjárhagsáætlun 2020. 

Bæjarráð staðfesti tillögu að fjárfestingum fyrir sitt leiti og samþykkti samhljóða að vísa henni til seinni umræðu í bæjarstjórn. 

6. Fjárfestingaáætlun Hafna Snæfellsbæjar fyrir árið 2020. 

Bæjarráð staðfesti fjárfestingaáætlun Hafna Snæfellsbæjar og samþykkti samhljóða að vísa henni til seinni umræðu í bæjarstjórn. 

7. Tillaga að styrkveitingum á fjárhagsáætlun 2020. 

Bæjarráð staðfesti tillögu að styrkveitingum fyrir sitt leiti og samþykkti samhljóða að vísa henni til seinni umræðu í bæjarstjórn. 

8. Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar, A- og B-hluta stofnana, fyrir árið 2020. 

Bæjarráð samþykkti samhljóða að vísa fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar fyrir árið 2020 til seinni umræðu í bæjarstjórn. 

8. Þriggja ára áætlun Snæfellsbæjar, A- og B-hluta stofnana, fyrir árin 2021-2023. 

Bæjarráð staðfesti þriggja ára áætlun Snæfellsbæjar fyrir árin 2021-2023 og samþykkti samhljóða að vísa henni til seinni umræðu í bæjarstjórn. 

9. Minnispunktar bæjarstjóra.

  • Bæjarstjóri sagði frá hafnarframkvæmdum við Norðurgarðinn í Ólafsvík.
  • Bæjarstjóri sagði frá framkvæmdum í sveitarfélaginu.
  • Rætt var um þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi. 

Fundi slitið kl. 12:55