Bæjarráð

Fundargerð bæjarráðs
312. fundur
2. apríl 2020 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar frá kl. 12:00 – 12:17

Fundinn sátu: Júníana B. Óttarsdóttir, Rögnvaldur Ólafsson, Svandís Jóna Sigurðardóttir, Kristinn Jónasson bæjarstjóri og Lilja Ólafardóttir bæjarritari.

Fundargerð ritaði: Lilja Ólafardóttir bæjarritari.

Sækja fundargerð

Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.  Óskaði hún eftir að fá að taka inn með afbrigðum sem 8. lið, bréf frá forstöðumanni Jaðars, dags. 24. október 2018, varðandi aukafjárveitingu.  Var það samþykkt og að því búnu gengið beint til boðaðrar dagskrár. 

Dagskrá:

1. Ársreikningur Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2019. 

Bæjarráð fór yfir ársreikning Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2019.  Nokkur umræða varð um reikninginn. 

Bæjarráð samþykkti ársreikninginn samhljóða og samþykkti jafnframt að vísa ársreikningi Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2019 til fyrri umræðu í bæjarstjórn. 

Fundi slitið kl. 12:17