Fræðslunefnd

Fræðslunefnd Snæfellsbæjar
212. fundur
17. maí 2022 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar frá kl. 20:00 – 21:30.

Fundinn sátu: Hermína, Linda, Auður, Kristín, Ari Bent, Monika, Sigrún og Tobba. Valentina komst ekki en sendi skýrslu fyrir fundinn.

Fundargerð ritaði: Sigrún Erla

Sækja fundargerð

Dagskrá:

1. Málefni leikskólans

  • Farið yfir skóladagatal 2022-2023. Rætt um starfsdagana 4 hjá leikskólum.  Starfsdagar GSNB verða á sama tíma næsta skólaár eins og hefur verið undanfarin ár.
  • 15 börn útskrifast frá leikskólanum í vor. Erla Sveinsdóttir er að hætta eftir 34 ára starf.
  • Það gengur vel að manna næsta haust.
  • Hermína segir frá málstefnu leikskólans.
  • Starfsmannasamtöl ganga vel.
  • Sumarlokun 6/7 – 10/8.
  • Skyndihjálparnámskeið fyrir starfsmenn í ágúst.
  • Brunaæfing í vikunni.
  • Hermína og Linda fóru á fyrirlestur um innra mat á leikskólanum. Matsteymi eru foreldrar, börn og starfsfólk.

2. Málefni grunnskólans – Hilmar mætir kl. 20:30

  • Hilmar minnir á tilnefningu menntaverðlauna vegna Átthagaverkefnis GSNB. Skólinn er með sérstaka heimasíðu tileinkaða þessu verkefni sem sýnir og segir frá verkefnum skólans; atthagar.is
  • Frá og með 1. apríl hefur GSNB verið alveg símalaus. Farið var í samstarf við nemendaráð og unnið að tillögum að afþreyingu.
  • Hilmar leggur skóladagatal 2022-2023 til kynningar. Skólasetning er 22. ágúst.  Samþykkt.
  • Hilmar greinir frá breygingum á starfsmannahaldi. Verið er að ganga frá ráðningu á kennurum.  8 starfsmenn að hætta sökum aldurs.  það vantar skólaliða og stuðningsfulltrúa.
  • Skólalokun 2022: skólaslit verða haldin í íþróttahúsinu og mega foreldrar og aðrir mæta að ósk nemenda og starfsfólks.

3. Málefni tónlistarskólans

  • Styrktartónleikar Tónlistarskóla Snæfellsbæjar voru haldnir í Ólafsvíkurkirkju miðvikudaginn 30. mars.
  • Fullorðnir nemendur, kennarar og makar fóru í endurmenntunar- og tónleikaferð í Skaftafell föstudaginn 22. apríl til sunnudagsins 24. apríl. Þar voru haldnir tvennir tónleikar fullorðinna nemenda Tónlistarskóla Snæfellsbæajr í Hótel Skaftafelli.  Nemendur og kennarar tónlistarskólans heimsóttu einnig Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi föstudaginn 22. apríl.  Heimsóknin skiptist annars vegar í meistaranámskeið í söng og hins vegar í viðræður og upplýsingar um skólann.  Hópurinn heimsótti einnig Þórbergssetur og Byggðasafnið á Skógum.
  • Vortónleikar Tónlistarskóla Snæfellsbæjar voru haldnir í Ólafsvíkurkirkju þriðjudaginn 10. maí.
  • Vortónleikar Tónlistarskóla Snæfellsbæjar verða haldnir í Lýsuhólsskóla miðvikudaginn 25. maí kl. 13:00.
  • Vortónleikar fullorðinna nemenda skólans verða haldnir í Hótel Langaholti í Staðarsveit miðvikudaginn 25. maí kl. 20:00.
  • Tveir píanónemendur ætla að taka grunnstigspróf í hljóðfæraleik í lok maí í Reykjavík

Fundi slitið kl. 21:30.