Fundargerðir

Hafnarstjórn
126. fundur
6. desember 2017 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar frá kl. 18:00 – 19:00

Fundinn sátu: Anton Ragnarsson formaður, Heiðar Magnússon, Þóra Olsen, Gísli Bjarnason, Fríða Sveinsdóttir og Björn Arnaldsson hafnarstjóri

Fundargerð ritaði:

Sækja fundargerð

Dagskrá:

1. Bréf frá bæjarritara, dags. 21.07. 2017, varðandi samþykkt bæjarráðs á fundargerð 125. fundar hafnarstjórnar.

Lagt fram til kynningar.

2. Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 395 dags. 23.05., nr. 396 dags. 25.08., nr. 397 dags. 20.09. og nr. 398 dags. 25.10.

Lagðar fram til kynningar.

3. Tölvupóstur frá Hafnasambandi Íslands, dags. 02.10. 2017. Meðfylgjandi er bréf frá Vegagerðinni, dags. 19.06. 2017, til Hafnasambandsins varðandi öryggismál hafna og ábendingar Rannsóknarnefndar samgönguslysa í öryggisátt. 

Lagt fram til kynningar.

4. Bréf frá Vegagerðinni, dags. 01.11. 2017, varðandi útboðið: Rifshöfn – Norðurkantur, þekja og lagnir.

Tilboð í verkið voru opnuð þann 17.10. 2017. Eftirfarandi tilboð bárust.

Þ.G. Þorkellsson ehf.
92.911.055.-     81.4%

Stálborg ehf.
107.013.000.-     93.8%

Kostnaðaráætlun verkkaupa, kr. 114.117.000.-     100.0%

Tilboðin hafa verið yfirfarin og leggur Vegagerðin til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Þ.G. Þorkellsson ehf. Samþykkt samhljóða að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Þ.G. Þorkellsson ehf., á grundvelli tilboðs hans og hafnarstjóra falið að undirrita samninginn.

5. Gjaldskrá hafnarsjóðs fyrir árið 2018.

Hafnarstjóri kynnti gjaldskrána og fór yfir helstu liði hennar. Gjaldskráin samþykkt samhljóða.

6. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs fyrir árið 2018.

Hafnarstjóri kynnti fjárhagsáætlunina og fór yfir helstu liði hennar. Fjárhagsáætlunin samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 19:00.