Hafnarstjórn
135. fundur
21. desember 2020 í Félagsheimilinu Klifi frá kl. 20:30 – 21:25
Fundinn sátu: Jón Bjarki Jónatansson formaður, Þóra Olsen, Pétur Pétursson, Sæunn Dögg Baldursdóttir, Hallgrímur Á. Ottósson og Björn Arnaldsson hafnarstjóri.
Fundargerð ritaði: Björn Arnaldsson, hafnarstjóri.
Dagskrá:
1. Bréf frá bæjarritara
Bréf frá bæjarritara, dags. 13.11. 2020, varðandi samþykkt bæjarstjórnar á fundargerð 133. fundar hafnarstjórnar. Lagt fram til kynningar.
2. Fundargerðir stjóranar Hafnasambands Íslands
Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 425 dags. 24.08., nr. 426 dags. 28.09., nr. 427 dags. 19.10. og nr. 428 dags. 13.11. 2020. Lagt fram til kynningar.
3. Gjaldskrá hafnarsjóðs fyrir árið 2021
Gjaldskrá hafnarsjóðs fyrir árið 2021. Hafnarstjóri kynnti gjaldskrána og fór yfir helstu liði hennar. Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
4. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun hafnarsjóðs fyrir árið 2021
Fjárhags og framkvæmdaáætlun hafnarsjóðs fyrir árið 2021. Hafnarstjóri kynnti áætlunina og fór yfir helstu liði hennar. Fjárhags og framkvæmdaáætlunin samþykkt samhljóða.