Hafnarstjórn
138. fundur
13. desember 2021 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar frá kl. 20:30 – 21:25
Fundinn sátu: Jón Bjarki Jónatansson formaður, Þóra Olsen, Heiðar Magnússon, Sæunn Dögg Baldursdóttir og Björn Arnaldsson hafnarstjóri.
Fundargerð ritaði: Björn Arnaldsson, hafnarstjóri.
Sækja fundargerð
Dagskrá:
1. Bréf frá bæjarritara
Bréf frá bæjarritara, dags. 23.06.2021, varðandi samþykkt bæjarráðs á fundargerð 137. fundar hafnarstjórnar. Lagt fram til kynningar.
2. Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands
Fundargerðir nr. 435, dags. 04.06.21, nr. 436, dags. 20.08.21, nr. 437, dags. 16.09.21, nr. 438, dags. 15.10.21 og nr. 439, dags. 12.11.21. Lagt fram til kynningar.
3. Gjaldskrá hafnarsjóðs fyrir árið 2022
Hafnarstjóri kynnti gjaldskrá og fór yfir helstu liði hennar. Gjaldskrá samþykkt samhljóða.
4. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun hafnarsjóðs fyrir árið 2022
Hafnarstjóri kynnti áætlunina og fór yfir helstu liði hennar. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun samþykkt samhljóða.