Snæfellsbær hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga sem sveitarfélagið og allar undirstofnanir þess vinna. Snæfellsbær leitast við að uppfylla í hvívetna þá persónuverndarlöggjöf sem er í gildi hverju sinni.
Persónuverndarfulltrúi sveitarfélagsins er Sigurður Már Eggertsson, lögfræðingur og sérfræðingur í persónuverndarmálum.
Hlutverk hans er að hafa eftirlit með fylgni með persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins, veita starfsmönnum þess ráðgjöf um vinnslu persónuupplýsinga og vera tengiliður við Persónuvernd og skráða einstaklinga.
Hægt er að hafa samband við persónuverndarfulltrúa með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@snb.is.
Viðhengi:
Stjórnsýslan
- Fundargerðir
- Ráð og nefndir
- Gjaldskrár
- Eyðublöð
- Reglur og samþykktir
- Persónuvernd