Félagsmiðstöðin Afdrep er á Hellissandi. Allir unglingar í 8.-10. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar geta sótt miðstöðina tvö kvöld í viku. Einu sinni í viku er hún opin fyrir 5.-7. bekk. Afdrep er staður þar sem unglingar fá tækifæri til að hittast og verja frítíma sínum í uppbyggilegu umhverfi. Krakkarnir eru með flotta Facebook-síðu þar sem þau setja inn myndir af starfinu og auglýsa viðburði.
Facebook-síða Félagsmiðstöðvarinnar Afdreps
Opnunartími:
Fyrir 8. – 10. bekk frá 18:30 – 21:00 á mánudögum og fimmtudögum.
Fyrir 5. – 7. bekk frá 17:30 – 19:00 á miðvikudögum.
Til upplýsingar:
Félagsmiðstöðin er í Líkninni við Keflavíkurgötu á Hellissandi.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar er forstöðumaður félagsmiðstöðvar.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi: Kristfríður Rós Stefánsdóttir.
Hægt er að senda henni tölvupóst með því að smella hér.