Snæfellsbær veitir styrk til allra barna og ungmenna í Snæfellsbæ til niðurgreiðslu þátttökugjalda í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Frístundastyrkur Snæfellsbæjar árið 2022 er 20.000 krónur og gildir fyrir börn og unglinga á aldrinum 5 – 18 ára.
Foreldrar og forráðamenn barna og unglinga sem stunda íþróttir hjá Ungmennafélaginu Víking/Reyni ganga frá skráningu og nýta frístundastyrk í Sportabler-kerfinu sem ungmennafélagið notar. Þeir sem vilja nýta styrkinn hjá öðrum félögum eða vegna náms í tónlistarskóla er bent á að óska eftir endurgreiðslu sem nemur upphæð frístundastyrknum eftir að gjöld hafa verið greidd. Sótt um endurgreiðslu til bæjarritara á netfanginu lilja@snb.is.
Til upplýsingar