Tónlistarskóli Snæfellsbæjar var stofnaður þann 1. júlí 2003. Þá sameinuðust Tónlistarskóli Ólafsvíkur og Tónlistarskóli Neshrepps utan Ennis í einn skóla.
Tónlistarskóli Snæfellsbæjar býður upp á fjölbreytta tónlistarkennslu og kappkostar að mæta þörfum og óskum nemenda sinna eftir því sem kostur er. Boðið er upp á einstaklingsmiðað nám þar sem þarfir hvers og eins eru hafðar í fyrirrúmi. Í skólanum er hægt að stunda ritmískt og klassískt nám en boðið er upp á forskóla, hljóðfæradeild og söngnám.
Til upplýsingar
Skólastjóri er Valentina Kay.
Hægt er að senda henni tölvupóst með því að smella hér.
Símanúmer: 433 – 9928 / 433 – 9929.
Farsími: 831 – 9540
Netfang: tonlistarskoli@snb.is
Tónlistarskólinn er til húsa við Hjarðartún 4-6 í Ólafsvík, Keflavíkurgötu 2 á Hellissandi og í Lýsuhólsskóla í Staðarsveit.
Skólar
- Leikskóli
- Grunnskóli
- Fjölbrautaskóli
- Tónlistarskóli