Leikskóli Snæfellsbæjar

Leikskóli Snæfellsbæjar er bæði í Ólafsvík og á Hellissandi
Sími: 433 6925 / 433 6926

Krílakot: Brúarholt 9 í Ólafsvík

Kríuból: Naustabúð 17 á Hellissandi

Í Snæfellsbæ er góður leikskóli þar sem lögð er áhersla á skapandi leik og starf.

Leikskóli Snæfellsbæjar hefur tvær starfsstöðvar, Krílakot í Ólafsvík og Kríuból á Hellissandi, og velja foreldrar hvor starfsstöðin henti þeim. Á leikskólanum er 101 pláss og geta börn að jafnaði fengið pláss við 12 mánaða aldur.

Einnig er rekið leikskólasel í Grunnskóla Snæfellsbæjar að Lýsuhóli sem þjónar börnum í dreifbýlinu í sunnanverðum Snæfellsbæ.


Leikskólastjóri:

Leikskólastjóri er Hermína Kristín Lárusdóttir. Netfang hjá henni er hermina@snb.is.

Símanúmer í Ólafsvík: 433 – 6925.
Símanúmer á Hellissandi: 433 – 6926.


Nánar:

Getum við bætt efni þessarar síðu?