Arnarstapi

Arnarstapi er vinsæll ferðamannastaður fyrir alla fjölskylduna. Þar eru góðar gönguleiðir, hótel, tjaldsvæði, gistihús og veitingastaðir. Frá Arnarstapa er einnig boðið upp á ferðir á Snæfellsjökul yfir sumartímann.

Ströndin við Arnarstapa er ákaflega fögur og sérkennileg, einkennilega mótuð af briminu. Góðir göngustígar liggja um Arnarstapa. Skemmtileg gönguleið liggur á milli Arnarstapa og Hellna og er að hluta til gömul reiðgata. Hún er við allra hæfi og er ströndin er friðlýst.

Arnarstapi var áður fyrr kaupstaður, sjávarpláss með miklu útræði og lendingin var talin ein sú besta undir Jökli.

Smábátahöfnin var endurbætt árið 2002 og er í dag eina höfnin á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þangað koma menn af ýmsum stöðum á landinu og gera út dagróðrabáta yfir sumartímann.

Arnarstapa er getið í Bárðarsögu Snæfellsáss og þar er steinlistaverkið Bárður Snæfellsás eftir Ragnar Kjartansson myndhöggvara sem setur mikinn svip á svæðið.

Getum við bætt efni þessarar síðu?