Sumarstarfsmaður sundlaugar Snæfellsbæjar
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá:
26.03.2025
Umsóknarfrestur til:
09.04.2025
Tengiliður:
kristfridur@snb.is
Íþróttamannvirki Snæfellsbæjar auglýsir eftir karlmanni í sumarstarf í sundlaug Snæfellsbæjar. Um er að ræða 100% stöðu.
Tilgangur og markmið í starfi er að veita viðskiptavinum, nemendum, iðkendum og öðrum hópum sem koma í íþróttamannvirki undir stjórn Snæfellsbæjar (Íþróttahús Snæfellsbæjar, Sundlaug Snæfellsbæjar, ásamt íþrótta-, og leik og sparkvöllum) frábæra þjónustu í hreinu og snyrtilegu umhverfi þar sem áhersla er lögð á öryggi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þjónusta og eftirlit með viðskiptavinum
- Þrif á húsnæði sundlaugar og nánasta umhverfi
- Eftirlit og önnur tilfallandi verkefni
- Unnið er eftir vaktarúllum og eru verkefni misjöfn á milli vakta og nánari verkefnalýsingum
- Afleysing í íþróttahúsi ef þess þarf
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Hreint sakavottorð skv. æskulýðslögum nr. 70/2007
- Gerð er krafa um ríka þjónustulund og samskiptahæfileika
- Geta lært á og viðhaldið almennri þekkingu á helsta áhalda- og tækjabúnaði í sundlaug
- Lágmarksþekking á notkun hefðbundins tölvubúnað til að geta lært á og notað afgreiðslukerfi
- Geta beitt grunnreiknireglum
- Samviskusemi, stundvísi og frumkvæði í starfi
Hægt er að hafa samband við Kristfríði Rós, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa um frekari upplýsingar um starfið.