Gott að eldast í Snæfellsbæ - kynningarfundur

Mánudaginn 4. nóvember kl. 16:00 verður opið hús fyrir íbúa Snæfellsbæjar í Klifi þar sem kynnt verður verkefnið Gott að eldast á Vesturlandi.

Dagskrá fundar:

  • Bæjarstjóri býður fólk velkomið.
  • Gott að eldast og tengiráðgjöf - Líf Lárusdóttir verkefnastjóri SSV
  • ,,Það er pláss fyrir alla" - Vitundavakning Félags- og vinnumarkaðsráðuneytis um félagslega einangrun.
  • Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur og Svavar Knútur söngvaskála

Samvera og kaffiveitingar í lok fundar.

Öll velkomin!

Getum við bætt efni þessarar síðu?