Bæjarráð

312. fundur 02. apríl 2020 kl. 12:00 - 12:17 Ráðhúsi Snæfellsbæjar
Nefndarmenn
  • Júníana Björg Óttarsdóttir
  • Rögnvaldur Ólafsson
  • Svandís Jóna Sigurðardóttir
  • Fríða Sveinsdóttir
  • Kristinn Jónasson bæjarstjóri
  • Lilja Ólafardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Lilja Ólafardóttir bæjarritari

Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn. Óskaði hún eftir að fá að taka inn með afbrigðum sem 8. lið, bréf frá forstöðumanni Jaðars, dags. 24. október 2018, varðandi aukafjárveitingu. Var það samþykkt og að því búnu gengið beint til boðaðrar dagskrár.

 
 
 
 

Dagskrá:

 

1. Ársreikningur Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2019.

Bæjarráð fór yfir ársreikning Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2019. Nokkur umræða varð um reikninginn.

Bæjarráð samþykkti ársreikninginn samhljóða og samþykkti jafnframt að vísa ársreikningi Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2019 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Getum við bætt efni þessarar síðu?