Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn. Var svo gengið beint til boðaðrar dagskrár.
Bæjarráð
Dagskrá:
1. Ársskýrsla Leikskóla Snæfellsbæjar 2019-2020.
Ingigerður Stefánsdóttir, leikskólastjóri, mætti á fundinn. Mikil umræða fór fram um starfsemi leikskólans í Snæfellsbæ og margar góðar hugmyndir komu fram. Var samþykkt að leikskólastjóri myndi vinna þær hugmyndir betur í samvinnu við bæjarstjóra og bæjarritara og í framhaldinu verður lagt minnisblað fyrir bæjarstjórn á næsta fundi í febrúar.
Vék Ingigerður nú af fundi og var henni þökkuð koman.
2. Bréf frá SSV, dags. 11. janúar 2021, varðandi styrk vegna uppbyggingar samvinnurýma í Röst.
Lagt fram til kynningar.
3. Umsókn frá Viðari Páli Hafsteinssyni, dags. 28. desember 2020, að fá að halda hundinn Þorra.
Umsókn var samþykkt samhljóða.
9. Minnispunktar bæjarstjóra.
- Bæjarstjóri ræddi skólaakstur í dreifbýli.
- Bæjarstjóri ræddi um innleiðingu Vinnustundar í stofnunum Snæfellsbæjar.
- Bæjarstjóri ræddi stöðuna í lýsingarmálum í sveitarfélaginu.
- Bæjarstjóri fór yfir framkvæmdir í sundlauginni í Ólafsvík.