Bæjarráð

324. fundur 14. júlí 2021 kl. 11:00 - 12:01 Ráðhúsi Snæfellsbæjar
Nefndarmenn
  • Júníana B. Óttarsdóttir
  • Auður Kjartansdóttir
  • Fríða Sveinsdóttir
  • Kristinn Jónasson bæjarstjóri

Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn. Var að því búnu gengið beint til boðaðrar dagskrár.

 
 
 
 

Dagskrá:

 

1. Fundargerð 150. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 1. júlí 2021.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 
 
 
 

2. Minnisblað frá bæjarstjóra, dags. 6. júlí 2021, varðandi áframhaldandi viðræður við Eyja- og Miklaholtshrepp.

Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra og bæjarritara að senda bréf til sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps, þar sem óskað er eftir afstöðu þeirra til að hefja formlega viðræður um sameiningu sveitarfélaganna.

 
 
 
 

3. Bréf frá umhverfis- og skipulagsnefnd, dags. 2. júlí 2021, varðandi ábendingar slökkviliðsstjóra um brunavarnir í Snæfellsbæ.

Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að fara yfir málið og koma með minnisblað inn á næsta fund.

 
 
 
 

4. Bréf frá Umhverfisstofnun, dags. 29. júní 2021, varðandi beiðni um tilnefningu fulltrúa í samstarfshóp um fyrirhugaða friðlýsingu selasvæðis við Ytri-Tungu í Staðarsveit.

Bæjarráð samþykkti að tilnefna Ragnhildi Sigurðardóttur sem fulltrúa Snæfellsbæjar í samstarfshópinn.

 
 
 
 

5. Bréf frá verkefnastjóra Umhverfisvottunar Snæfellsness, dags. 2. júlí 2021. ásamt frammistöðuskýrslu Snæfellsbæjar 2016-2020.

Lagt fram til kynninga en bæjarráð óskar eftir því að skýrslan verði aðgengileg á heimasíðu Snæfellsbæjar og á facebooksíðu sveitarfélagsins.

 
 
 
 

6. Minnispunktar bæjarstjóra.

  1. Bæjarstjóri fór yfir malbikunarframkvæmdir sem eiga að hefjast í næstu viku.
Getum við bætt efni þessarar síðu?