Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn. Var gengið beint til boðaðrar dagskrár.
Bæjarráð
Dagskrá:
1. Ársreikningur Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2021.
Bæjarráð fór yfir ársreikning Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2021. Nokkur umræða varð um reikninginn.
Bæjarráð samþykkti ársreikninginn samhljóða og samþykkti jafnframt að vísa ársreikningi Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2021 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.