Bæjarstjórn
Mættir:
Kristín Björg Árnadóttir
Kristjana Hermannsdóttir
Björn H Hilmarsson
Rögnvaldur Ólafsson
Baldvin Leifur Ívarsson
Fríða Sveinsdóttir
Ari Bent Ómarsson í fjarveru KÞ
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Lilja Ólafardóttir, bæjarritariForseti bæjarstjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn, sér í lagi Ara Bent Ómarsson sem nú situr sinn fyrsta bæjarstjórnarfund. Var að svo búnu gengið beint til boðaðrar dagskrár.
Dagskrá bæjarstjórnarfundarins:1. Bréf frá slökkviliðs Snæfellsbæjar, dags. 4. september 2015
Eftirfarandi bókun var lögð fram og samþykkt samhljóða:
„Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkir samhljóða að fresta ráðningu slökkviliðsstjóra til 1. desember 2015, samkvæmt samhljóða tillögu slökkviliðs Snæfellsbæjar á fundi sem haldinn var fimmtudaginn 3. september. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að fresta upptöku nýs fyrirkomulags á stjórnunarstöðum innan slökkviliðsins til sama tíma.
Bæjarstjórn samþykkir, að fenginni samhljóða tillögu slökkviliðsmanna, að fela Svani Tómassyni að gegna stöðu slökkviliðsstjóra í 20% stöðu og Sigurði Sveini Guðmundssyni að gegna stöðu varaslökkviliðsstjóra í 10% stöðu, tímabundið til 1. desember 2015.
Fram til 1. desember 2015, mun slökkviliðið og bæjarstjórn vinna að varanlegri lausn að stjórnun slökkviliðsins í samræmi við þær breytingar sem bæjarstjórn hefur þegar samþykkt.“
2. Minnispunktar bæjarstjóra.
a) Bæjarstjóri fór yfir vatnsverksmiðjumál.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:53____________________________
Kristín Björg Árnadóttir
____________________________ ___________________________
Kristjana HermannsdóttirBaldvin Leifur Ívarsson
____________________________ ___________________________
Björn H HilmarssonFríða Sveinsdóttir
____________________________ ___________________________
Rögnvaldur Ólafsson Kristján Þórðarson
____________________________ ___________________________
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Lilja Ólafardóttir, bæjarritari