Hafnarstjórn

102. fundur 20. júní 2016 kl. 10:45 - 10:45

102. fundur hafnarstjórnar Snæfellsbæjar haldinn þriðjudaginn 16.08.2011, kl.20.00 á skrifstofu hafnarstjóra Norðurtanga 5, Ólafsvík

Mættir:

Anton Ragnarsson formaður,

Arnar L. jóhannson,

Heiðar Magnússon,

Bárður Guðmundsson,

Björn arnaldsson hafnarstjóri.

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

  1. Bréf frá bæjarritara dags. 13.07.2011, varðandi samþykkt bæjarráðs á fundargerð 101. fundar hafnarstjórnar. lagt fram tilkynningar.
  2. Bréf frá Siglingarstofnun Íslands dags. 14.07.2011, varðandi útboðið "Ólafsvík, Suðurþil-steypt þekja og masturshús, Arnarstapi steypt þekja." Eftirfarandi tilboð bárust og voru þau opnuð þann 14.07.2011
  • Þ.G Þorkelsson ehf. Grundarfirði,                                     kr. 37.447.974.     71.59%
  • Almenna umhverfisþjónustan ehf. Grundarfirði,          kr. 37.998.900.   72.64%
  • Á.Á. verktakar hf. Reykjanesbæ,                                       kr. 47.671.000.     91.13%
  • Stálborg ehf. Hafnarfirði,                                                   kr. 50.776.520.     97.07%
  • Kostnaðaráætlun Siglingarstofnunar Íslands,               kr. 52.311.850.   100.00%

Siglingastofnun hefur farið yfir tilboðin og leggur til að samið verði við lægstbjóðanda Þ.G Þorkelsson ehf.  Samþykkt samhljóða að ganga tilsaminga við Þ.G. Þorkelsson ehf. á grundvelli tilboðsins kr 37.447.974.

Þá kynnti hafnarstjóti teikningar að fyrrnefndum framkvæmdum sbr. lið nr. 8 í fundargerð 101. fundar hafnarstjórnar. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við framlagðar teikningar.

3. Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 338 dags. 12.05.2011, og nr.        339 dags. 09.06.2011. Lagt fram til kynningar.

4. Tölvupóstur frá Hafnasambandi Íslands dags. 08.08.2011, varðandi hafnafund sem haldinn verður í Reykjavík þann 16.09.2011. Meðfylgjandi er dagskrá fundarins. Tillaga lögð fram um að eftirtaldir mæti á fundinn:

Björn Arnaldsson hafnastjóri,

Anton Ragnarsson formaður hafnarstjórnar.

Tillagan samþykkt samhljóða.

5. Bygging á nýju vigtarhúsi við Rifshöfn. Hafnarstjóri sagði frá gangi mála, en verið er að vinna við teikningar og verklýsingu.

Fleira var ekki gert og fundi slitið slitið kl. 21.25

Anton Ragnarsson formaður.

Heiðar Magnússon.

Arnar L. Jóhannsson.

Bárður Guðmundsson.

björn arnaldsson hafnarstjóri.

 

 

 

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?