Hafnarstjórn

100. fundur 12. júlí 2016 kl. 14:50 - 14:50

 

100. fundur hafnarstjórnar Snæfellsbæjar haldinn fimmtudaginn 31.03. 2011, kl. 20.30 á skrifstofu hafnarstjóra Norðurtanga 5, Ólafsvík.

 

Mættir: Anton Ragnarsson formaður,

Guðlaugur Gunnarsson,

Heiðar Magnússon,

Bárður Guðmundsson,

Alexander F. Kristinsson,

Björn Arnaldsson hafnarstjóri.

 

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

 

 

1.      Bréf frá bæjarritara dags. 12.01. 2011, varðandi samþykkt bæjarstjórnar á fundargerð 99. fundar hafnarstjórnar. Lagt fram til kynningar.

 

2.      Bréf frá Siglingastofnun Íslands dags. 12.01. 2011, varðandi Rifshöfn. Meðfylgjandi er teikning nr. B-8197, vegna dýptarmælinga dags. 25.11. 2010, hnitaskrá á innsiglingarennu og hnit á staðsetningu á nýrri bauju í innsiglingarennu. Samþykkt samhljóða að staðsetning á bauju verði eins og hnit á teikningu nr. B-8197 er. Fram kom hjá hafnarstjóra að fyrrnefnd teikning hafi legið frammi hjá hafnarvörðum í Rifi og einnig hefur hún verið afhent skipstjórnarmönnum í Rifi.

 

3.      Bréf frá Siglingastofnun Íslands dags. 26.01. 2011, varðandi styrkhæfar hafnaframkvæmdir hjá hafnarsjóði árið 2011. Um er að ræða breikkun þekju og byggingu á masturshúsi á Suðurþili í Ólafsvík. Óskað er eftir staðfestingu hafnarstjórnar um að hafnarsjóður geti staðið undir greiðslu á heimahluta framkvæmdakostnaðar. Samþykkt samhljóða að staðfesta að hafnarsjóður standi undir heimahlutanum.

 

4.      Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 335 dags. 04.02. 2011, og nr. 336 dags. 10.03. 2011. Lagt fram til kynningar.

 

5.      Ársreikingur Hafnasambands Íslands árið 2010. Lagt fram til kynningar.

 

6.      Kaupsamningur vegna Norðurtanga 9a, Ólafsvík. Hafnarstjóri kynnti samninginn og ástæður þess að húseignin var keypt. Samningurinn samþykktur með 3 atkvæðum, 2 sátu hjá.

 

7.      Skýrsla Siglingastofnunar Íslands um framkvæmd samgönguáætlunar árið 2009, siglingamálaáætlun. Hafnarstjóri kynnti helstu atriði í skýrslunni varðandi framkvæmdir í höfnum Snæfellsbæjar og framkvæmdir við sjóvarnir í Snæfellsbæ. Lagt fram til kynningar.

 

8.      Skýrsla frá hag og upplýsingasviði Sambands Íslenskra sveitarfélaga um afkomu hafna árið 2009. Hafnarstjóri fór yfir og kynnti ýmis atriði skýrslunnar. Lagt fram til kynningar.

 

9.      Hafnalög nr. 61/2003, m.s.b. Lagt fram til kynningar.

 

10.  Reglugerð um hafnamál nr. 326/2004. Lagt fram til kynningar.

 

11.  Rætt um öryggisbúnað á olíudælum fyrir smábáta m.t.t. mengunar. Samþykkt samhljóða að fela hafnarstjóra að kanna málið.

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 22.10

 

Anton Ragnarsson formaður.

Heiðar Magnússon.

Guðlaugur Gunnarsson.

Alexander F. Kristinsson.

Bárður Guðmundsson.

Björn Arnaldsson hafnarstjóri.
Getum við bætt efni þessarar síðu?