Íþrótta- og æskulýðsnefnd

55. fundur 21. júní 2016 kl. 09:45 - 09:45
  1. fundur Íþrótta- og æskulýðsnefndar var haldinn í Íþróttahúsi snæfellsbæjar mánudaginn 28.mars 2011 kl. 17.00
Mættir:

Ari Bent Ómarsson

Brynja Mjöll Ólafsdóttir

Elva Ösp Magnúsdóttir

Erla Sigurðardóttir

Snædís Hjartardóttir

Sigrún Ólafsdóttir

 

  1. Ungmennaráð / Ungmennahús

Ungmennin okkar í Ungmennaráði hafa verið mjög áhugasöm og dugleg í að koma Ungmennahúsinu á laggirnar. Opnunarkvöld Ungmennahússins tókst mjög vel og eru allir mjög ánægðir með hvernig til tókst. Fín mæting hefur verið í húsið og er ágætis rennerí hjá krökkunum.

Ráðstefna verður haldin í Reykjavík þann 16.apríl fyrir þau sem starfa í Ungmennaráðinu. Ekki er ákveðið hvort einhverjir fulltrúar fara fyrir hönd Snæfellsbæjar en það yrði mjög gott ef einhver úr ráðinu hefði möguleika á því að mæta.

Fundargerðir Ungmennaráðs voru lagðar fram til samþykktar. þær voru samþykktar með öllum atkvæðum Íþrótta- og æskulýðsnefndar.

  1. Fjárhagsáætlun

Óbreytt framlag til Íþrótta- og æskulýðsmála fyrir árið 2011. Nefndarmenn eru ánægðir að ekki skuli verið skorið niður til þessa málaflokks. Nefndarmenn eru hins vegar afar ósáttir við að öllum framkvæmdum við sundlaug og útipottaaðstöðu skuli vera frestað. lögð var fram bókun í framhaldi af þessari umræðu.

  1. júní hátíðarhöld

Nefndinni hefur borist svarbréf frá tveimur nefndum sem fengu bréf vegna 17.júní hátíðarhalda. Þessir aðilar hafa tekið mjög jákvætt í að taka á einhvern hátt í skipulagningunni.

vonast er til aðs vör berist fljótlega frá þeim aðilum sem eiga eftir að svara.

Byrjað er að vinna í að skipuleggja dagskráliði.

  1. Önnur mál

Um 54 unglingar úr Snæfellsbæ fóru á Samfés og gekk sú ferð einstaklega vel. Farið var með rútu og gist í Reykjavík.

Menntamálaráðuneytið stendur fyrir málþingi þann 28.apríl sem ber yfirskriftina „Þáttaka er lífsstíll“ Málþingið verður haldið í Fjölbrautarskóla Snæfellinga og er ekkert þáttökugjald á þingið. Á þessu málþingi verður talað fyrir því að þáttaka sé undirstaða alls og fólk hvatt til að taka þátt í því sem er í því sem í boði er.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl 18:00

Getum við bætt efni þessarar síðu?