Íþrótta- og æskulýðsnefnd

54. fundur 23. júní 2016 kl. 11:47 - 11:47

54. Fundur íþrótta- og æskulýðsnefndar var haldinn þriðjudaginn 18.Janúar 2011, kl. 16:00

Mættir:

Ari Bent Ómarsson.

Brynja mjöll ólafsdóttir.

Elva Ösp Magnúsdóttir.

Erla Sigurðardóttir.

Sigrún Ólafsdóttir.

Snædís Hjartadóttir.

  1. Félagsmiðstöðin Afdrep

Við fengum til okkar á fundum góða gesti þau Heiðrúnu Huld Hallgrímsdóttur og jens Guðmundsson forstöðumenn félagsmiðstöðvarinnar Afdreps. Þau sögðu frá starfi félagsmiðstöðvarinnar og því sem framundan væri á næstu mánuðum. Búið er að útbúa dagskrá fram á vorið sem auglýst verður fyrir krakkana einn mánuð í senn.

Ungmennin hafa verið að mæta ágætlega í félagsmiðstöðina en þó hefur verið slakari mæting núna rétt fyrir áramótin. 10.bekkur hefur verið minnst að mæta en þó hefur verið fastur kjarni úr þeim bekk sem mætir alltaf.

Félagsmiðstöðinni barst á dögunum glæsileg gjöf frá Rauðakrossinum hjá Snæfellsbæ og mun sú gjög koma sér vel fyrir ungmennin og á hún eftir að vekja lukku.

Dræm þáttaka var hjá krökkunum í keppninni Stíl fyrir áramótin og bendir allt til þess að sömu sögu verði að segja um söngvakeppnina sem fara á fram núna fljótlega.

Þau heiðrún og Jens eru nú að vinna í því að tengja betur saman nemendaráðið við starfssemi félagmiðstöðvarinnar þannig að virkari tenging sé þarna á milli.

Við þökkum þeim Heiðrúnu og Jens kærlega fyrir komuna og kynninguna og á því starfi sem þau eru að vinna með unglingunum okkar.

2. Ungmennaráð

Nú er ungmennaráðið nánast að verða fullmannað en eitt ungmenni vantar ennþá. Nefndin ákvað að boða ráðið til fundar með formanni íþrótta- og æskulýðsnefndar og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa núna í lok mánaðarins. Þá mun erindisbréfið verða afhent.

3. Önnur mál

Haft var samband við íþrótta- og æskulýðsfulltrúa vegna dansleiks sem fyrirhugað er að halda í Grundarfirði í Febrúar á vegum útskriftarhóps Fjölbrautarskóla Snæfellsness. Á dagskránni er að halda eitt ball fyrir ungmenni í 8-10.bekk og svo annað ball í kjölfarið fyrir 16 ára og eldri.

Auglýst hefur verið eftir styrkjum út Æskulýðssjóði. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hefur sótt um undanfarin ár enn ekki fengið styrk úr sjóðnum. Ákveðið var að benda íþróttafélögunum Víkingi og Reyni á að sækja um í sjóðnum að þessu sinni.

lífshlaupið byrjar núna í febrúar. Gott og gaman fyrir fyrirtæki og stafnanir að hvetja sitt starfsfólk til þáttöku, hvort sem er í einstaklings eða liðakeppni. ákveðið að auglýsa og minna á þegar nær dregur.

mjög góð sðsókn var í sundlaugina í nóvembermánuði þegar ákveðið var að frítt yrði í sund fyrir alla. jókst aðskóknin í laugina miða við sama mánuð árið á undan um 20%. Ný gjaldskrá hefur verið tekin í gildi í Sundlaug Snæfellsbæjar og var engin hækkunfrá því sem áður var. Eina breytingin sem gerð hefur verið er að búið er að taka tillit til nýrrar reglugerðar um aukið öryggi á sundstöðum sem tók nú gildi um áramótin. því var ákveðið að í stað þess að 7 ára og eldri greiði 200 kr er nú miða við 10 ára aldurinn. Frítt er því í sund fyrir 0-9 ára.

Í framhaldi af þessu vill Íþrótta- og æskulýðsnefnd leggja fram eftirfarandi bókun sem samþykkt er af öllum nefndarmönnum:

Ný reglugerð um aukið öryggi á sundstöðum sem tók nú gildi um áramótin.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur undirritað reglugerð sem auka mun öryggi fólks á sundstöðum. Í reglugerðinni eru gerðar ítarlegri kröfur um öryggiskerfi og laugargæslu en gert var í eldri reglugerð. Þá eru auknar kröfur gerðar um öryggi barna og sérstakar kröfur gerðar til sundlaugavarða, kennara og þjálfara. Þá er börnum yngri en 10 ára /afmælisdagurinn gildir) óheimilt að fara í sund nema í fylgd með syndum einstaklingi sem er 15 ára eða eldri.

íþrótta- og æskulýðsnefnd styður íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Snæfellsbæjar í ákvörðun sinni um að láta árið gilda í stað afmælisdag, eins og nýja reglugerðin segir til um.

17.júní Hátíðarhöld:

íþrótta- og æskulýðsfulltrúi er farin að huga að dagsrkrárhöldum fyrir 17.Júní. Umræða skapaðist um þennan dag og kom upp sú hugmynd að gaman væri að fá fleiri aðila að hugmyndavinnu í tengslum við þennan dag. Ákveðið var að senda bréf til annrra nefnda og félagsamtaka um það hvort þeir hefðu áhuga á að koma að hátíðarhöldum með því að leggja til eina mannsekju í sínum röðum í hugmyndavinnu með íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:15

Getum við bætt efni þessarar síðu?